You are currently viewing Hreinn kremástur frá Livefood

Hreinn kremástur frá Livefood

Hreinn kremástur er lykilhráefnið í hina fullkomnu ostaköku. Hann gefur henni þessa dásamlegu, þéttu og rjómakendu áferð sem bráðnar í munni. QR kóði með uppskrift af kremástarköku er á öllum pakkningum.

Það jafnast ekkert á við silkimjúkan kremást þegar kemur að því að töfra fram ljúffengar sósur. Hann þykkir sósuna áreynslulaust og gefur mildan, ríkan keim sem lyftir hverjum rétti upp á hærra plan.

Hreini kremásturinn passar jafnt í dásamleg kökukrem og matarmiklar pasta sósur. Með því einu að hræra smá rjómaásti saman við sósuna eða súpuna breytist hún í algjört dekur fyrir bragðlaukana.

Hreinn kremástur er án allra dýraafurða með engum hnetum í og hentar því vel þeim sem eru með mjólkur- eða hnetuofnæmi.

Prófaðu strax í dag! Hreinn kremástur frá Livefood fæst í verslunum Hagkaupa, í Krónunni, hjá Garra, Matarbúðinni Nándinni í Hafnarfirði, Sólskinsbúðinni á Flúðum og í vefverslun Livefood.